|
 Dæli, Víðidal | 451-2566 |
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
GPS: N65 21.741 W20 36.227 www.daeli.is

Ferðaþjónustan Dæli í Víðidal hefur verið rekin, við góðan orðstír, frá árinu 1988. Í Dæli er boðið upp á fjölbreytta aðstöðu og afþreyingu fyrir ferðamenn af ýmsu tagi, bæði einstaklinga og hópa. Víðidalur er ekki langt frá Hvammstanga. Þar er mikil náttúrufegurð og stutt að fara og skoða miklar náttúruperlur eins og Hvítserk og Kolugljúfur.
Um tjaldsvæðið
Á tjaldsvæðin á Dæli er pláss fyrir tjaldvagna, fellihýsi og önnur tjöld. Eldunar- og snyrtiaðstaða er í aðstöðuhúsi. Á tjaldstæðinu er rafmagn
Aðstaðan
Góð aðstaða er að Dæli en þar er rekin ferðaþjónusta með útleigu á herbergjum, smáhýsum og sumarbústaði. Þar er einnig aðstöðuhús sem var reist árið 1997 og er um 73 m² að stærð. Í því er sturtu- og snyrtiaðstaða fyrir bæði karla og konur. Þar er einnig matsalur með eldunaraðstöðu. Fyrir utan húsið er verönd með borðum og stólum ásamt útigrillum. Rétt við húsið eru svo leiktæki fyrir börnin.
Opnunartími
Maí til september
Verð
- Fullorðnir: 900 kr.
- 7-14 ára: 300
- Frítt fyrir yngri en 7 ára
- Rafmagn: 500 kr nóttin
Annað
Svæðið er fjölskyldusvæði og því getur fólk verið vísað burtu vegna ofurölvunar og skrílsláta. Hljótt skal vera eftir kl 24:00.
Smelltu hérna til að skoða afþreyingu í nágrenninu.
 |