Heim
www.gocamping.is
Ingen oversættelse til dansk findes, venligst læs den engelske tekst. Tjaldsvæði vikunnar að þessu sinni eru tjaldsvæðin á Blönduósi og tjaldsvæðið Ártún
Tjaldsvæðið á Blönduósi hefur löngum verið eitt af þeim vinsælli enda í alfaraleið. Öryggismyndavélar eru á svæðinu til að tryggja öryggi tjaldgesta. Aðstaðan á svæðinu er til fyrirmyndar en þar er gott þjónustuhús með uppvöskunaraðstöðu, salernum og sturtu. Á svæðinu er einnig leiktæki og fótboltavöllur. Einnig eru leigð út sumarhús og því hentar svæðið mjög vel fyrir til dæmis ættarmót þar sem það eru ekki allir tilbúnir til að vera í tjaldi eða vagni.
Smellið hérna til að skoða nánar tjaldsvæðið á Blönduósi
Tjaldsvæðið Ártún er við veginn til Grenivíkur. Stutt er til Grenivíkur þar sem er sundlaug, golfvöllur, útgerðarminjasafn og margt fleira. Góð aðstaða er á svæðinu en þar eru snyrtingar með sturtu, inniaðstaða, rafmagn og aðstaða til að losa ferðasalerni.
Smellið hérna til að lesa nánar um tjaldsvæðið í Ártúni.
|
|
Senest opdateret: |
|
|
|